Við erum í bandarískri unglingamynd...

... og útrásarvíkingarnir eru vondu stelpurnar sem hafa svindlað sér leiðina á toppinn en fær að lokum makleg málagjöld.  Ég þekki mann sem vill draga úr þeim neglurnar með töngum þar til peningarnir eru komnir heim.  Ég veit að góða stelpan í bíómyndinni fær að sýna hæfileika sína í lokin og vondu stelpurnar detta í drullupoll og verða alveg ferlega fúlar.  Kannski þarf að fara fram blóðug bylting til að það gerist.  Ef þessir földu peningar finnast ekki, styttist í það að hópur fólks ræðst inn í hallir auðvaldsins og nær í það sem hægt er að koma í verð.  Í alvöru!  Við erum þá að tala um blóðuga unglingamynd, kannski Flugnahöfðingjann. 

Forsetinn má líka segja af sér.

Við erum ekkert að grínast þegar farið er fram á nýtt lýðveldi.  Hvað var forsetinn að gera í Dubai?  Hver eru tengsl hans við Abramóviítsj og félaga?  Eru hendur hans hreinar?  Hvað sagði hann í partíinu?  Ég væri alveg til í að fá að kjósa forseta líka í vor.  Nú vil ég fá áframhaldandi minnihlutasjórn svo þingið fái einhverju ráðið.  Í rauninni höfum við lifað við 18 ára einræði Sjálfstæðisflokksins og það setur að mér hroll ef einhver vill fara í samstarf með honum eftir kosningar.  Síðustu tveir formenn vita ekki hvaða þjóð þeir áttu að þjóna.  Furðulegt að Geir geti ekki beðist afsökunar án þess að vera handtekinn.  Heima hjá mér er nóg ástæða að ropa í boði og það þarf enga nefnd til að úrskurða um það.  Mál Davíðs þarf ekki að ræða, það segir sig sjálft.

Hvað var Seðlabankastjóri að gera í London?

Getur einhver svarað því?

Mér finnst spurning DV sanngjörn. 

Hann er farinn að minna á Einab skipstjóra... og þjóðin er hvalurinn.

Það er einhver sturlun í gangi.

En það fer allt einhvernvegin þótt margir efist um það á tímabili.


Samfylkingin á að sprengja ríkisstjórnina og sammælast við andstöðuna um utanþingsstjórn.

Dætur mínar spurðu í gær hvort forsetinn gæti ekki gert eitthvað í þessu óefni öllu. 

Ef Samfylkingin sprengir ríkisstjórnina og sammælist við Vinstri Græna og Framsókn um að taka rúnt upp á Bessastaði, þar sem ópólitísk utanþingsstjórn verður mynduð fram að kosningum, gæti forsetinn komið að gagni.

Og ef allir eru tilbúnir til að byggja upp Nýtt Heiðarlegt Ísland af heilindum og heiðarleika myndi hver einasti þingmaður styðja þá stjórn til uppbyggingar og rannsóknar á efnahafslegu og  siðferðislegu falli þjóðarskútunnar.

Það er auðvitað út í hött að stjórnmálamenn skuli miða ábyrgð sína við ábyrgð sakamanna.  Siðferði er eitt lögbrot er annað.


mbl.is Viljum ekki stjórnarkreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fordæmum hvert einasta MORÐ!!

Hér stöndum við algjörlega ráðalaus gagnvart þessum morðum.  Mín uppástunga er að íslensk stjórnvöld sendi yfirlýsingu um fordæmingu á hverju einasta morði.  Það eru þá fleiri tugir á dag.  Ef íslensk stjórnvöld samþykkja að þarna eigi sér stað STRÍÐ en ekki SKIPULÖGÐ MORÐ Á SAKLAUSUM BORGURUM, geta þau allavega sent yfirlýsingu um hvert barn sem DREPIÐ ER MEÐ KÖLDU BLÓÐI.  Það er skelfilegt að "bíða eftir því að fulltrúi Sameinuðu Þjóðanna mæti á staðinn til að skoða aðstæður."  Við vitum hvað er að gerast þarna og ekki eftir neinu að bíða. 
mbl.is Loftárásir á Rafah
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðbrögð við viðbrögðum við viðbrögðum á mótmælum...

Ég hef aldrei fengið jafnmörg komment eins og þegar ég bloggtjáði þá skoðun mína að mótmælendur við hótel Borg hefðu verið þar fyrir mig.

Ég er á móti ofbeldi og styð aldrei  að kasta grjóti í lögreglumenn (sjálfum finnst mér Geir Jón vera maður ársins) eða skemma eigur fólks en fer ekki ofan af því að þessi 200 sem mótmæltu á Gamlársdag hafi gert það fyrir mig.

Þarna voru saman komin í mestu makindum fyrsta, annað og fjórða valdið - og í ofanálag hafði umboðsmaður Alþingis staðfest fyrr um daginn það sem allir vissu, nefnilega maðkétið mjöl í sameiginlegum sekki framkvæmdarvaldsins og dómsvaldsins. 

Ég horfði á Kryddsíldina á Plúsnum og aldrei var myndavélunum beint út um gluggann þrátt fyrir gullið tækifæri.

Mér finnst að gíslarnir hafi gert uppreisn á Gamlársdag.  Almenningur hefur verið í gíslingu (dáleiðslu) útrásarvíkinga, stjórnmálamanna og fjölmiðla og Gamlársuppþotin hafi verið skýr skilaboð um að gíslatökunni sé lokið.  

Elsku Ingibjörg, slíttu samstarfinu og leyfðu okkur að kjósa. Hvað heldurðu að gerist í febrúar þegar atvinnuleysið er farið að hafa áhrif og fullvaxnir, atvinnulausir, reiðir íslenskir karlmenn streyma út á göturnar?  

Það er þrennt í stöðunni:   

  1. Boða til kosninga.
  2. Fjármála-, forsætis- utanríkis og viðskiptaráðherrar, auk Seðlabankastjóra og forstjóra Fjármálaeftirlits segja af sér. Allt þetta fólk getur gefið kost á sér í næstu kosningum ef það hefur ekki brotið lög.
  3. Óánægja, upplausn, óeirðir.
Mér þykir "unplugged" kommentið alveg jafn smekklaust og upphrópanir um "helvítis mótmælendur og kommúnista".


 


Þeir eru þarna fyrir mig Ingibjörg.

... og hættu nú.
mbl.is Kryddsíld lokið vegna skemmdarverka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÓLI STEFÁNS SÁ DAUÐASYNDIRNAR TVISVAR SINNUM.

Ólafur Stefánsson Stórriddari sá Dauðasyndirnar tvisvar sinnum.  Ég held að trúðarnir séu ekkert að gera of mikið úr því þegar þeir segja að það hafi verið liður í undirbúningnum að Ólympíuferðinni, áfangi í Silfurleiðangri fyrirliðans.  Því lærdómur Dantes eftir förina gegnum Víti, Hreinsunarfjallið og Paradís rímar heldur betur við ,,attitjúdið" sem Óli skilaði hingað heim í sjónvarpsviðtölum eftir leiki, nefnilega:  ,,...Lyftu skeggi þínu maður og vertu fullorðinn.  Hefurðu nýtt þá hæfileika sem Guð gaf þér?  Hvernig væri að hreinsa burt það slæma og takast á við að rækta það góða?  Settu nú fyrir þig hver þú ert og hvernig þú getur þjónað lífinu.  Fyrir framan þig standa allar þær gjafir sem þér hafa verið gefnar, viðurkenndu þær, ræktaðu þær, því þær eru hæfileikar þínir sem þú berð sjálfur ábyrgð á að fari ekki til spillis."  Nokkurnvegin svona er ræða Beatrís þegar Dante hittir hana í Paradís - allavega inntakið.

 

Trúðarnir myndu þó aldrei eigna sér silfrið en líta þó þannig á samhengið að þeim hafi tekist það áætlunarverk sem þeir settu sér við upphaf æfingatímabilsins; að deila með sér og hafa jákvæð áhrif:  ,,Because it´s all about sharing". 

 

Undirbúningur fyrir leiki er landsliðsins er heldur ekki ólíkur undirbúningi trúðanna fyrir Dauðasyndirnar.  Í blaðaviðtali um helgina má lesa að handboltastrákarnir hafi skoðað myndir af börnum sínum og fjölskyldum fyrir leiki.  Leikararnir í trúðasýningunni undirbúa sig einmitt m.a. með því að segja ,,morgunsögur" - sögur af fjölskyldum sínum.  Reyna að koma auga á litlu hlutina í hversdeginum, bæði mistök og rétt tök, hafa húmor fyrir kostum sínum og göllum, fylla lífið af kærleika og fyrirgefa sjálfum sér.  Ekki síst viðurkenna kosti sína og fegurð hversdagsins.  Svo eru auðvitað gerðar upphitunar- og tækniæfingar. 

 

Ég er alinn upp í Grindavík og stundum sá ég Guðberg Bergsson í göngutúr.  Hann var ósnertanlegur.  Hálfguð sem stigið hafði niður af Ólympsfjalli til að fá sér göngutúr um bæinn okkar.  Siggi Sigurjóns kom aldrei til Grindavíkur þá, svo ég muni, en hann var oft í sjónvarpinu og þangað var heldur ekki hægt að komast.  Sjónvarpið var skuggsjá af lífi guðanna.  Þegar ég var tólf ára var mér sagt í afmælisveislu vinkonu minnar að það væri hægt að læra að verða leikari.  Þetta hafði mér aldrei dottið í hug.  Hægt að læra að verða leikari!!!  Ég hélt að slíkar verur spryttu alskapaðar úr höfði Seifs og lifðu svo ævintýralegu lífi sínu á óræðnum stað þar sem ekki einu sinni hugurinn gæti bankað upp á.  Var það virkilega svo að það væru dyr fyrir oss dauðlega inn í þetta líf draumanna?  Að sjálfsögðu tók ég ákvörðun um að fara í þennan skóla og ég komst þar inn og ég varð leikari.  Löngu seinna þegar ég sat við hlið Sigga Sigurjóns í sminkherbergi Þjóðleikhússins og við vorum að setja á okkur gerfin fyrir einhverja sýninguna, þurfti ég að klípa mig til að fullvissa mig um að þetta væri satt.  Ég sat þarna með einum of sonum Seifs og það var eins og ekkert væri eðlilegra. 

 

En kraftaverkið gerðist löngu seinna.  Þá hafði ég líka haldið fyrirlestur við hlið Guðbergs Bergssonar í Grunnskóla Grindavíkur.  Það var líka löngu eftir það.  Kraftaverkið var nefnilega þegar ég sá að við vorum allir menn.  Við vorum allir menn og jafnir fyrir Guði með kosti okkar og galla.  Aðdáun mín á hæfileikum Sigga og Gugga minnkaði alls ekki við þetta.  Hún er jafnmikil ef ekki meiri.  Þeir hafa viðurkennt þær gjafir sem þeim voru gefnar og ræktað þær.  Alveg eins og Stórriddarinn Óli.  Við erum öll manneskjur og eigum tækifæri á allskonar hlutum í allar áttir.  Göngumst við því!!!

 

Aftur að trúðunum.  Úlfar, trúðurinn minn, fékk þá frábæru hugmynd að búa til sýningu um Silfurleiðangurinn.  Þar fer Morfeus, guð draumanna, upp á Ólympsfjall á kappleika með flokk manna frá fámennri þjóð og vinnur silfursjóðinn.  Þegar hann vaknar þá áttar hann sig á því að hann er maður og jafningi allra annarra manna.  Afrekið sem hann vann var að takast á við sjálfan sig og deila með sér af kærleika, krafti og von.  Síðan hljómar:  ,,Ó, Guð vors lands".

 

Óli (þetta er eins og í skáldsögu eftir Einar Má) ef þú lest þetta væri gaman að hitta þig og bera saman bækurnar.  Ég held að Silfurleiðangurinn hafi verið ákveðin hreinsun (kaþarsis) fyrir þjóðina rétt eins og leikhúsið því þar fékk hún tækifæri til að sjá sitt rétta andlit.  Hún fékk að sjá kosti sína.  Leikhús þarf ekki og á ekki bara að snúast um að sjá gallana.  Leikhúsið og Ólympíuleikarnir spretta líka úr sömu mold í garði forngrikkja og með mestallri menningu samtímans erum við að rækta þann garð.

 

Þótt ég tali hér til Óla, þá sótti allur flokkur landsliðsmanna silfursjóðinn til Austurlanda og ég beygi höfuð mitt fyrir hæfileikum hvers og eins, ekki síst þjálfarans.  Það er gaman að vita til þess að þeir hafi stytt sér stundir með því að horfa á Venna Páer og vonandi hef ég gert þeim eitthvart gagn þar, segi ég alveg eins og afgreiðslustelpan sem seldi Guðjóni Val keppnisskóna eða píparinn sem lagaði sírennslið í klósettinu hjá Snorra Steini.  Það þarf heilt þorp til að ala upp barn - og heila þjóð til að ala upp landslið. 

 

Dauðasyndirnar verða teknar upp í vetur og eru nokkrar sýningar hjá Leikfélagi Akureyrar í október og takmarkaður fjöldi sýninga í Borgarleikhúsinu í nóvember.  Svo er það búið.

 

 

 

 


SUMARFRÍ

ER Í ÞOKKALEGU SUMARFRÍI.  Langar samt að óska Grindvíkingum til hamingju með nýjan bæjarstjóra.

Eigi skal gráta björn... heldur bónda...

Ísbjörn skotinn á Íslandi.  Þegar ég kveikti á Bylgjufréttunum í hádeginu hélt ég að við hefðum orðið fyrir hryðjuverkaárás - þvílíkur var æsingurinn.  Hefði ekki verið hægt að gefa honum gúrku í tíðinni með svefnlyfjum eða báru OR og borgarstjórn smjörklípu á björninn? 

Var björninn bjarnason eða kannski hrafnsson? 

Held að maðurinn sem tók ákvörðunina um að taka í gikkinn væri verr settur ef hann hefði týnt dýrinu á heiðum og inn á bæi.  

Ég spyr eins og fréttamaðurinn:  Þarf ekki að vera til aðgerðaráætlun við innrás bjarndýra?

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband