2.1.2009 | 20:00
Viðbrögð við viðbrögðum við viðbrögðum á mótmælum...
Ég hef aldrei fengið jafnmörg komment eins og þegar ég bloggtjáði þá skoðun mína að mótmælendur við hótel Borg hefðu verið þar fyrir mig.
Ég er á móti ofbeldi og styð aldrei að kasta grjóti í lögreglumenn (sjálfum finnst mér Geir Jón vera maður ársins) eða skemma eigur fólks en fer ekki ofan af því að þessi 200 sem mótmæltu á Gamlársdag hafi gert það fyrir mig.
Þarna voru saman komin í mestu makindum fyrsta, annað og fjórða valdið - og í ofanálag hafði umboðsmaður Alþingis staðfest fyrr um daginn það sem allir vissu, nefnilega maðkétið mjöl í sameiginlegum sekki framkvæmdarvaldsins og dómsvaldsins.
Ég horfði á Kryddsíldina á Plúsnum og aldrei var myndavélunum beint út um gluggann þrátt fyrir gullið tækifæri.
Mér finnst að gíslarnir hafi gert uppreisn á Gamlársdag. Almenningur hefur verið í gíslingu (dáleiðslu) útrásarvíkinga, stjórnmálamanna og fjölmiðla og Gamlársuppþotin hafi verið skýr skilaboð um að gíslatökunni sé lokið.
Elsku Ingibjörg, slíttu samstarfinu og leyfðu okkur að kjósa. Hvað heldurðu að gerist í febrúar þegar atvinnuleysið er farið að hafa áhrif og fullvaxnir, atvinnulausir, reiðir íslenskir karlmenn streyma út á göturnar?
Það er þrennt í stöðunni:
- Boða til kosninga.
- Fjármála-, forsætis- utanríkis og viðskiptaráðherrar, auk Seðlabankastjóra og forstjóra Fjármálaeftirlits segja af sér. Allt þetta fólk getur gefið kost á sér í næstu kosningum ef það hefur ekki brotið lög.
- Óánægja, upplausn, óeirðir.

eythora
eggmann
ransu
hoskuldur
bennigrondal
naiv
haugur
ver-mordingjar
hundshaus
kvenfelagidgarpur
sjalfstaeduleikhusin
moguleikhusid
gilsneggerz
ingvalg
tildators
lillagud
siggikaiser
ellasprella
hugs
smida
dathe
malacai
thorasig
gummisteingrims
lillo
gellarinn
fararstjorinn
dunni
birgitta
huldumenn
rassgat
jevbmaack
kruttina
gattin
gral





Athugasemdir
Beggi, samt. hvernig eru djókarnir um Járnfrúnna í UK. Hví getum við ekki haft breskan húmor?
Þegar búið var að útskýra djókinn fyrir mér þá fannst ér hann tóm snilld.
Hákon (IP-tala skráð) 2.1.2009 kl. 20:13
Flestar mótmælaaðgerðir hafa veri mér að skapi, og líklega flestum. Hef þó ekki tök á að taka þátt.
Þeir sem halda að vandi leysist með látum og meiðingum verða alltaf innanum og ósköp lítið við því að gera annað en að verða ekki fyrir.
Lögregluþjónarnir er menn (skrýtið ha) og þeir eru í þeirri erfiðu klemmu að vera flestir á sama báti og mótmælendurnir en verða jafnframt að sinna starfi sínu skv. fyrirmælum. Mér finnst þeir upp til hópa aðdáunarverðir starfsmenn okkar.
Eins og þú segir réttilega þá gætum við búist við róttækari aðferðum ef/þegar sverfur að. Það er LÍKA SKILJANLEGT. Ætli nokkur byltingartilraun eða uppreisnir hafi "tekist" í góðæri og velsæld. NEI, byltingu er hægt að gera þegar illa stendur á hjá almúganum.
Beturvitringur, 2.1.2009 kl. 22:02
Jæja þá er Dóri Gríms unplugged eins og ég óskaði. Hvað ætli helvítis sveitastjórafíflið segi við því? Vill hann argast meira í mér sá amlóði?
Fúkyrði sérvalin vegna þess að regnbogabarnið/sveitastjórinn byrjaði.
HLF (IP-tala skráð) 4.1.2009 kl. 23:48
LIFI BYLTINGIN! ...en óskum engum manni dauða.
Bergur Þór Ingólfsson, 5.1.2009 kl. 09:20
Ef þú hefðir verið í frönsku byltingunni, þá hefðirðu afhöfðað mjúkt :)
Sem er mjög gott, enda hef ég aldrei óskað neinum manni dauða. Sveitastjórinn með takmarkaða blóðstreymið um hausinn las bara á sinn máta og það sannarbara að innrætið er í stíl við smettið.
Gleðilegt ár segi ég svo bara og pojj pojj vinstri hægri :)
HLF (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 11:24
Til hammó með ammó kæri frændi og velkominn á fimmtugsaldurinn.
Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar, 6.1.2009 kl. 21:43
Þetta er ekki flóknara en 1. 2. 3. eins og þú orðaðir það!
Þór Jóhannesson, 9.1.2009 kl. 11:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.