Fordæmum hvert einasta MORÐ!!

Hér stöndum við algjörlega ráðalaus gagnvart þessum morðum.  Mín uppástunga er að íslensk stjórnvöld sendi yfirlýsingu um fordæmingu á hverju einasta morði.  Það eru þá fleiri tugir á dag.  Ef íslensk stjórnvöld samþykkja að þarna eigi sér stað STRÍÐ en ekki SKIPULÖGÐ MORÐ Á SAKLAUSUM BORGURUM, geta þau allavega sent yfirlýsingu um hvert barn sem DREPIÐ ER MEÐ KÖLDU BLÓÐI.  Það er skelfilegt að "bíða eftir því að fulltrúi Sameinuðu Þjóðanna mæti á staðinn til að skoða aðstæður."  Við vitum hvað er að gerast þarna og ekki eftir neinu að bíða. 
mbl.is Loftárásir á Rafah
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Björn

En viltu þá ekki fordæma morð Hamas á Ísraelum?

Guðmundur Björn, 13.1.2009 kl. 22:27

2 identicon

Öll morð skal fordæma. Öll.

Spekingur (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 22:47

3 Smámynd: Ár & síð

971 Gazabúi og þrír Ísraelsmenn, það er 974 of margir drepnir í þessum fáránleika.

Ár & síð, 13.1.2009 kl. 22:49

4 identicon

Guðmundur.  Síðan hvenær eru hermenn myrtir, er það kanske síðan hlutdrægir fréttamiðlar segja frá öllu sem gerist þarna.

Stendur öruglega svona hjá fox fréttastöðinni í U$A "3 ísraelskir hermenn myrtir 1000 palestínskir hryðjuverkamenn vegnir"

Jón Ingi (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 07:49

5 Smámynd: Beturvitringur

Aðferðir Hamas eru forkastanlegar, þrátt fyrir óbærileg lífsskilyrði... en það gerir ekki Ísraelsmenn betri, - að svara, ekki í sömu mynt, heldur margfalt, á saklaust fólk á öllum aldri.

Verður ekki að lama aðgerðir Hamas til að rjúfa þennan vítahring?  Auðvitað hef ég ekkert vit á því hvernig í pottinn er búið. En þegar aðstæður fólks eru orðnar þær að maður tárast fyrir framan sjónvarpið ÞÁ ER ÁSTANDIÐ MIKLU MEIRA EN HELVÍTI FYRIR ÍBÚANA

Beturvitringur, 15.1.2009 kl. 02:42

6 identicon

Hvað varð um sveitastjórann... núna loks fyrrverandi.

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/01/16/var_sveitarstjori_i_8_manudi/

Sparkað bara? Kom hann fram við steitaliðið eins og mig hér? Var hann með árásir á sveitungana vegna eigin skilningsleysis eins og ég lenti í?

Beggi, er þetta einn af þínum kunningjum? (trúi því varla)

Veistu eitthvað um málið eða á ég að slá á vini mína í blaðabransanum og láta grafast fyrir um þetta?

HLF (IP-tala skráð) 16.1.2009 kl. 15:27

7 Smámynd: Beturvitringur

humm og ha við síðustu athugasemd. Segi nú um hana eins og sálfræðingurinn í Kastljósi sagði um kreppuna: "Hún kom eins og þjófur úr heiðskíru lofti"

Beturvitringur, 17.1.2009 kl. 03:24

8 identicon

Bwahahahaha!

En svona í alvöru, fyrst það eru komnar meiri fréttir af þessu.

Sveitó misskilur komment frá mér, eipsjittar og skrifar ömurðar hatursfærslu á eigið blogg og það kostar hann djobbið.

....ég er eiginlega bara stoltur og ekki svo lítið kátur.

HLF (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 12:29

9 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Tek undir hvert orð hjá þér Bergur.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 20.1.2009 kl. 01:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband