Samfylkingin á að sprengja ríkisstjórnina og sammælast við andstöðuna um utanþingsstjórn.

Dætur mínar spurðu í gær hvort forsetinn gæti ekki gert eitthvað í þessu óefni öllu. 

Ef Samfylkingin sprengir ríkisstjórnina og sammælist við Vinstri Græna og Framsókn um að taka rúnt upp á Bessastaði, þar sem ópólitísk utanþingsstjórn verður mynduð fram að kosningum, gæti forsetinn komið að gagni.

Og ef allir eru tilbúnir til að byggja upp Nýtt Heiðarlegt Ísland af heilindum og heiðarleika myndi hver einasti þingmaður styðja þá stjórn til uppbyggingar og rannsóknar á efnahafslegu og  siðferðislegu falli þjóðarskútunnar.

Það er auðvitað út í hött að stjórnmálamenn skuli miða ábyrgð sína við ábyrgð sakamanna.  Siðferði er eitt lögbrot er annað.


mbl.is Viljum ekki stjórnarkreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: corvus corax

Það mundi enginn þingmaður sjálfstæðisflokksins styðja heiðarlega stjórn og rannsókn á misferli fjármálamanna. Sjálfstæðismenn eru sökudólgarnir og gjörsamlega blindir á eigin glæpi!

corvus corax, 22.1.2009 kl. 17:42

2 Smámynd: Garún

Ég vildi óska að við hættum að líta á stjórnmál eins og fótboltaleik, þar sem allir í hinu liðinu eru slæmir.   Veljum fólk og málefni og hættum að flokka okkur né aðra sem sjálfstæðismenn eða hvað sem þetta heitir nú alltaf.  Ég kýs alltaf eftir því hvort einhver segir eitthvað fyndið í sjónvarpinu eða fer með rímur og svoleiðis....kannski er það vandamálið, ég veit það ekki.   

Garún, 28.1.2009 kl. 17:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband